Fiido Nomads - Rafmagnsfjallahjól
Fiido Nomads – rafhjól fyrir borgina, lengri ferðir og allt þar á milli
Fiido Nomads er öflugt og fjölhæft rafhjól með framdempara, það hentar vel fyrir þá sem vilja hjól sem hægt er að hjóla á í skóla eða vinnu ásamt því að taka lengri hjólatúra. Með allt að 60 km drægni á einni rafhlöðu, 29" dekkjum og þægilegri hjólastöðu er Nomads frábært hjól fyrir íslenskar aðstæður.
Hjólið er með 250W brushless mótor sem skilar 45 Nm, ásamt togskynjara sem aðlagar mótoraðstoðina að því hversu fast þú stígur á pedalana. Útkoman er mjúk og náttúruleg aðstoð sem lætur hjólið líða meira eins og hefðbundið reiðhjól.
9 gíra Shimano gírskiptir og vökvadiskabremsur.
Nomads kemur með 417,6 Wh rafhlöðu sem auðvelt er að taka úr hjólinu til hleðslu. Fyrir þá sem vilja fara enn lengra er hægt að bæta við tveimur aukarafhlöðum og auka heildardrægni upp í allt að 180 km.
Hjólið kemur vel búið frá upphafi með brettum, bögglabera, standara, fram- og afturljósum og stefnuljósum. HD litaskjár sýnir helstu upplýsingar á skýran hátt og hjólið er IP54 vatnsvarið.
Hvort sem þú ert á leið í vinnuna, út í búð eða í langan hjólatúr út fyrir bæinn þá er Fiido Nomads tilbúið í ferðina.
Frekari upplýsingar
Skynjari: Togskynjari
Drægni: Allt að 60 km
Rafhlaða: 417,6 Wh, úrtakanleg
Mótor: 250W brushless, 45 Nm
Gírar: 9 gíra Shimano
Burðargeta: 120 kg
Bremsur: Vökvadiskabremsur
Dekk: CST 29 × 2,1"
Þyngd: 24,7 kg með rafhlöðu
Vatnsheldni: IP54 – allt hjólið
Skjár: HD litaskjár
Hámarkshraði: 25 km/klst.
Stærð: Fyrir uþb 175–200 cm
Sæti: Stillanlegt
Innifalið með hjólinu:
Fram- og afturljós, stefnuljós, bretti, bögglaberi og standari.